jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Ég tek undir hamingjuóskir til hæstv. dómsmálaráðherra með fram komið frumvarp og einkum og sér í lagi breytta afstöðu hennar. Þetta hefur sjálfsagt verið mjög stórt skref fyrir hana, einkum og sér í lagi vegna þess að hún var aðstoðarmaður þess ráðherra, mig rekur minni til þess, sem keyrði þetta í gegnum ríkisstjórn á sínum tíma sem lagðist að einhverju leyti, a.m.k. þeir sem sátu í henni þá, harðlega gegn þessu máli. Það hefði hins vegar verið yndislegt ef hæstv. ráðherra hefði þorað að stíga þetta skref til fulls og láta hjá líða að leggja íþyngjandi skyldur á atvinnulífið, í bókstaflegri merkingu skrifræðisbáknið sem felst í skýrsluskrifum til einhverrar stofnunar sem mun aldrei nokkurn tímann fara yfir þessar skýrslur og ekkert mun koma út úr.