jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp fyrir hönd þingflokks Samfylkingarinnar til að segja að við styðjum þetta góða mál. Hér erum við að einfalda regluverk á atvinnulífið. Hér erum við að draga úr kostnaði atvinnurekanda á sama tíma og við stöndum vörð um þau grunngildi að við stuðlum að jöfnum launum á markaði. Ég verð að nýta tækifærið af því að ég hef svolítið gaman af því að hlusta á fyrrverandi ráðherra úr ríkisstjórninni sem hafa verið hér við völd síðastliðin ár, bæði ráðherra í ríkisstjórn sem innleiddu þetta kerfi á sínum tíma, hafa verið í ríkisstjórn frá því að kerfið var innleitt og ekki breytt kerfinu, ekki létt byrðum af atvinnulífinu, ekki einfaldað regluverk, ekki létt þennan kostnað af atvinnulífinu. Hér er komin ríkisstjórn (Gripið fram í.) sem lætur verkin tala, einfaldar regluverk fyrir atvinnulífið, dregur úr kostnaði en stendur vörð um grunngildin, að það eigi að vera jafn há laun fyrir sömu störf óháð kyni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)