jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Frú forseti. Ég vil bara fagna þessu skrefi hér sem er stigið til að draga úr óþarfakostnaði og skrifræði og regluverki hjá atvinnulífinu sérstaklega en auðvitað stofnunum landsins sömuleiðis, þó að betra hefði verið að stíga skrefið til fulls. Hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar gerði hér góðlátlegt grín að þeim ráðherrum sem sátu í ríkisstjórninni sem þetta innleiddi. En þetta mál sýnir einmitt hvers lags ógöngum flokkar geta lent í þegar þeir láta undan mestu delluhugmyndum samstarfsflokkanna og það er akkúrat það sem Samfylking og Viðreisn gera nú um stundir og við ræðum hér í þingsölunum dagana langa. Ég vildi bara koma þessari ábendingu til virðulegs þingflokksformanns Samfylkingarinnar, að það getur verið hættulegt að láta undan mestu vitleysunni, eins og Sjálfstæðisflokkurinn gerði á sínum tíma og Björt framtíð, sem er ekki lengur að störfum í pólitíska samhenginu.