157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:30]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég vil þakka þingheimi og sérstaklega allsherjarnefnd fyrir góða vinnu í þessu máli við frumvarp mitt þar sem við erum að stíga þau skref að einfalda regluverk. Við höfum hlustað á atvinnulífið, við höfum hlustað á fyrirtækin í landinu sem hafa sagt okkur þetta: Þetta er dýrt kerfi. Það er þungt í vöfum. Og þegar þetta eru skilaboðin árum saman frá atvinnulífinu leggjum við við hlustir og við breytum þessu. Þessi ríkisstjórn er hins vegar ríkisstjórn sem stendur vörð um jafnrétti á vinnumarkaði og við höfum náð fram tilhlýðilegu jafnvægi milli þessara tveggja markmiða núna. Við stöndum vörð um jafnrétti á vinnumarkaði og við förum í það að afnema þetta regluverk sem hefur reynst býsna þungt fyrir atvinnulífið. Við erum ríkisstjórn sem þorir að hlusta og þorir að breyta og mætum nú þessum kröfum atvinnulífsins eftir að þetta kerfi hefur verið við lýði í nokkur ár.