157. löggjafarþing — 105. fundur, 30. apr. 2026.
jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
297. mál
Frú forseti. Með þessu frumvarpi erum við að ganga ansi langt í að fara til baka frá jafnlaunavottun sem var hér áður. Með breytingartillögu hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur værum við að ganga aðeins lengra og ég held að það sé ekki tímabært. Það getur vel verið að við komumst að því eftir einhvern tíma að það sé rétt að gera þetta valkvæðara. Ég held að það sé ekki rétt að gera það núna og þess vegna segi ég nei.