jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Ég átta mig ekki alveg á þessu. Það eru allir sammála hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur sem hefur bent á það hvað eftir annað að þetta sé ekkert rosalega góð hugmynd. Ég geri engar athugasemdir við það að formaður þingflokks Samfylkingar fái eitthvert kikk út úr því að skamma okkur sem samþykktum einhverja vitleysu í stjórnarsáttmálanum á sínum tíma frá Viðreisn. Það er ekkert mál. (Gripið fram í.) Það má alveg. Þetta er bara spurning um hvort hægt sé að gera einhvern samning þannig að þeir geti gert meira af því og greitt atkvæði með tillögu hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur, því að við vitum öll að málið væri miklu betra ef við kláruðum það og það eru allir búnir að tala með þeim hætti hér inni. Að vísu er þetta farið af töflunni, kannski vegna þess að stjórnarliðar ætla að skipta um skoðun. En ég hvet þá til að greiða atkvæði í samræmi við það sem þeir vita, sem er það að þessi breytingartillaga muni gera málið miklu betra. (Gripið fram í: [Hlátur í þingsal.] )