157. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:39]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Afstaða okkar Sjálfstæðismanna er einmitt sú að fyrirtækjum og stofnunum sé frjálst að skreyta sig með svona dyggðaskreytingum ef þau kjósa svo. En mig langar til að vekja athygli á því að í greinargerð þessa frumvarps er vísað í launagagnsæistilskipun ESB, sem hefur ekki verið innleidd hér á landi. Þar er viðmiðið 100 starfsmenn og eins og Félag atvinnurekenda og fleiri hafa bent á er því um eiginlega gullhúðun að ræða í þessari tillögu ef meiningin er sú að fylgja ESB í þessum málum.