jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp aðallega til að svara hv. þingmanni og þingflokksformanni Samfylkingarinnar sem kemur hérna upp með mjög ómerkilegum hætti í sínum fræga Morfís-stíl og reynir að klína því á mig að ég vilji aðlagast Evrópusambandinu. Þetta var góðlátleg ábending frá mér sem áhugamanni um Evrópurétt og stuðningsmanni atvinnulífsins um að þeir sem vilja svo gjarnan aðlagast Evrópusambandinu og vilja stíga skref í þá átt og vísa til þess í greinargerð með þessu frumvarpi, eins og þessi ríkisstjórn gerir, þurfa þá a.m.k. að vera samkvæmir sjálfum sér. Ég er einfaldlega að enduróma sjónarmið atvinnulífsins og ég held reyndar að fleiri en ég sjái í gegnum þessi ómerkilegheit hv. þingmanns.