jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegi forseti. Nú er ég ofboðslega meðvituð um orð hæstv. forseta hér áðan um rápið á mér í þingsal. Það eru reglulega gerðar rannsóknir á þróun svokallaðs kynbundins launamunar og þær sýna allar sem ein að verulega dregur úr þessum mun. En við búum auðvitað í mestu jafnréttisparadís heims þó að ekki sé allt unnið. Rannsóknirnar hafa reyndar líka sýnt að það hafi enginn marktækur árangur náðst af jafnlaunavottun þannig að það er auðvitað líka vel. Það er þess vegna í fínu lagi okkar vegna að slíkar rannsóknir séu gerðar áfram og við höldum áfram að klappa okkur á bakið fyrir góðan árangur.