laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna.
Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna. Frumvarpinu er ætlað að lögfesta varanlegt viðmið fyrir uppfærslu launa þeirra sem fá laun sín ákvörðuð samkvæmt sérstökum lagaákvæðum. Að því er stefnt að viðmiðið verði skýrt í túlkun og víðtæk sátt geti skapast um notkun þess. Það er afar brýnt í ljósi sögunnar og þess umróts í samfélaginu sem breytingar á launum þessa hóps hafa valdið oft á tíðum og þingheimur þekkir vel.
Forseti. Hér er brugðist við vanköntum sem hafa komið í ljós undanfarin ár við ákvörðun launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna. Framvegis verður tryggð festa við þessar ákvarðanir en um leið er gætt að sjálfstæði dómara og ákærenda gagnvart öðrum greinum ríkisvaldsins. Frumvarpið er almennt að því leyti að það tekur til allra þeirra þjóðkjörnu fulltrúa og embættismanna sem eins háttar til um við ákvörðun launa. Mikilvægt er að sama fyrirkomulag gildi um hópinn í heild sinni og er það burðarásinn í því að stuðla að því að breytingar á launum sé í senn hægt að sjá fyrir og að þær lúti skýrum viðmiðum.
Hér er rétt að geta þess að nýlega samþykkti Alþingi lög um breytingu á lögum um laun forseta Íslands sem fela í sér að forsetaritari bætist í hóp þeirra sem taka laun samkvæmt ákvæðum laga og þörf er á að uppfærist með sama hætti og þetta frumvarp gerir ráð fyrir.
Forseti. Forsaga þessa máls er orðin nokkuð löng og á hún rætur sínar að rekja til þess að kjararáð var lagt niður árið 2018 og laga frá 2019 um nýtt fyrirkomulag eftir að kjararáðið var lagt af. Þá ber að nefna áhrif dóms Hæstaréttar í lok árs 2023 en hann fjallaði um viðmið við uppfærslu launa dómara og framkvæmd við beitingu þess viðmiðs. Frá árinu 2019 hefur í fjórgang verið brugðist við fyrirséðum breytingum á launum þessa hóps með lagasetningu vegna aðstæðna í samfélaginu sem þóttu kalla á sérstaka íhlutun af hálfu stjórnvalda. Launabreytingum hefur ýmist verið frestað eða þær ákveðnar með öðrum hætti en segir í lögunum frá 2019. Um þessa forsögu alla er ítarlega fjallað í greinargerð frumvarpsins og læt ég því hér við sitja í framsöguræðu minni og vísa til hennar um nánari upplýsingar.
Inngrip af því tagi sem ég lýsti hér að framan grafa auðvitað undan fyrirsjáanleika og trausti á fyrirkomulagi við uppfærslu launa þessa hóps. Inngripin sýna glöggt nauðsyn þess að lögfesta skýrara viðmið til framtíðar, viðmið sem er til þess fallið að tryggja að launaþróun hópsins sé í takt við aðra hópa og laun hans dragist hvorki aftur úr né hækki óhóflega umfram laun annarra starfsmanna ríkisins.
Forseti. Með lögfestingu varanlegs viðmiðs er tekið mið af tillögum starfshóps forsætisráðherra sem var skipaður árið 2025 í samráði við aðila vinnumarkaðarins. Starfshópurinn leggur til í skýrslu sinni, frá 20. apríl 2026, að viðmið við uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna sem fá laun ákvörðuð með lögum verði meðaltal reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Það viðmið er jafnframt í samræmi við þingviljann sem birtist við setningu laga nr. 79/2019.
Með frumvarpinu er lagt til að festa í lög, í viðeigandi lagabálkum, að Hagstofa Íslands skuli reikna og birta meðaltal reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Í því felst að það verður lögbundið hlutverk Hagstofu Íslands að reikna og birta þá tölfræði og hlutfallslega breytingu á grundvelli hennar. Í því samhengi er talið æskilegt að birta talnaefni um meðaltal reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna með aukinni tíðni þar sem birtar tölur eftir lögfestingu nýs viðmiðs yrðu ekki lengur bráðabirgðatölur. Gert er ráð fyrir að tölur verði birtar ársfjórðungslega.
Forseti. Lagt er til að uppfærsla launa samkvæmt nýju viðmiði verði tvisvar á ári, 1. apríl og 1. október. Í skýrslu starfshóps forsætisráðherra segir að í samskiptum starfshópsins við Hagstofu Íslands hafi komið fram að unnt sé að beita aðferðafræði um uppfærslu launa tvisvar á ári sem stytti þann tíma sem líði á milli almennrar launaþróunar og uppfærslu launa hópsins sem hér er rætt um, en leiði til svipaðrar niðurstöðu til lengri tíma litið og ef uppfærsla er gerð einu sinni á ári. Í skýrslunni kemur fram að með aukinni tíðni í útreikningum og uppfærslu launa tvisvar á ári, í stað einu sinni, náist betra samræmi á milli launaþróunar þjóðkjörinna og æðstu embættismanna og þess hóps sem þau miðast við. Uppfærslur launa yrðu einnig betur í samræmi við aðstæður í efnahagslífi og þróun á vinnumarkaði hverju sinni og fylgi launaþróun ríkisstarfsmanna með minni töf en áður.
Forseti. Notkun launavísitölu ríkisstarfsmanna við uppfærslu launa hópsins hefur leitt til þess að laun hans hafa undanfarin ár hækkað umfram laun annarra ríkisstarfsmanna. Sú umframhækkun hefði orðið enn meiri ef ekki hefði verið gripið inn í fyrirséðar hækkanir á árunum 2023 og 2024. Að óbreyttum lögum munu laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna hækka umtalsvert umfram aðra hópa 1. júlí næstkomandi. Hagstofa Íslands birti þann 23. mars árshækkun launavísitölu ríkisstarfsmanna fyrir árið 2025. Við þá hækkun ber að miða uppfærslu launa hópsins á þessu ári, samkvæmt dómi Hæstaréttar 22. desember 2023, og nemur hún 9,7%. Í ljósi nauðsynlegs undirbúningstíma Hagstofu Íslands liggur fyrir að nýtt viðmið samkvæmt því sem hér er lagt til getur ekki tekið gildi vegna uppfærslu launa í ár né á næsta ári. Hér er því lagt til að laun þess hóps sem frumvarpið fjallar um hækki þess í stað um 3,5% 1. júlí 2026. Með þeirri hækkun er horft til kjarasamningsbundinna hækkana viðmiðunarárið 2025 samkvæmt stöðugleikasamningi á almennum vinnumarkaði. Kjarasamningar sem aðilar á opinberum vinnumarkaði gerðu í kjölfarið tóku mið af þeim hækkunum. Hér er því sýnd ábyrgð á tímum mikillar verðbólgu og hárra vaxta með því að leggja til þessa 3,5% hækkun. Þá er lagt til að við innleiðingu nýs viðmiðs verði hækkun í eitt skipti árið 2027 og verði sú hækkun jafnframt 3,5% til samræmis við kjarasamningsbundnar hækkanir sem samið hefur verið um bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Loks er lagt til að uppsöfnuð hlutfallsleg hækkun á árinu 2028 verði ekki meiri en 3,5%.
Með framangreindum hætti fylgir sá hópur sem frumvarpið nær til kjarasamningsbundnum hækkunum viðmiðunaráranna 2025, 2026 og 2027. Hér er þrædd leið sem er nauðsynleg við innleiðingu nýs viðmiðs til að skapa sátt og taka um leið tillit til þeirra markmiða sem stefnt er að í efnahagsmálum.
Að síðustu vil ég nefna að lagt er til að ráðherra skipi starfshóp fyrir lok árs 2031, þar sem meðal annarra eigi sæti fulltrúar aðila vinnumarkaðarins, til að leggja mat á reynslu af aðferðafræði og fyrirkomulagi uppfærslu launa sem lagt er til í frumvarpinu.
Forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum en hvet þingmenn aftur til þess að kynna sér vel ítarlega greinargerð frumvarpsins. Loks legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu.