varamenn taka þingsæti.
Þann 30. apríl barst bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að varamaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, Sigurður Örn Hilmarsson, yrði fjarverandi frá 4. til og með 10. maí. Þann 4. maí tók því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Tómas Þór Þórðarson, en hann hafði áður tekið sæti á þingi. Þann 11. maí tók Sigurður Örn Hilmarsson, 1. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, sæti á ný á Alþingi sem varamaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og vék þá Tómas Þór Þórðarson af þingi.
Sigurður Örn Hilmarsson er boðinn velkominn til starfa að nýju.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Miðflokksins um að Karl Gauti Hjaltason muni verða fjarverandi á næstunni.
Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Þórarinn Ingi Pétursson muni ekki geta sinnt þingstörfum næstu daga. Mánudaginn 18. maí tóku því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi, Heiðbrá Ólafsdóttir, og 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, Jónína Brynjólfsdóttir. Jónína Brynjólfsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.