Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 819, um vörugjöld af fólksbifreiðum, frá Bergþóri Ólasyni og á þskj. 918, um áhrif hækkana almannatrygginga á örorkulífeyri úr lífeyrissjóðum, frá Sigmundi Erni Rúnarssyni. Einnig hefur borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 926, um stafrænt fullveldi Íslands, frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur. Þá hafa borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1088, um hlutfall stöðugilda kennara í leikskólum, frá Bryndísi Haraldsdóttur og á þskj. 1161, um sérskóla og sérdeildir, frá Ingvari Þóroddssyni. Að lokum hafa borist bréf frá innviðaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við eftirfarandi fyrirspurnum frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni: Á þskj. 1062, um rekstrarkostnað og arðsemismat, á þskj. 1064, um rekstur samgöngumannvirkja og framlög til verkefna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, á þskj. 1067, um forgangsröðun verkefna í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, á þskj. 1068, um arðsemismat samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, og á þskj. 1070, um afkastagetu Sæbrautar.