157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:07]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni. Ég vil vekja athygli á því að hér er risamál á ferðinni. Það er ljóst að við erum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu og þjóðin þarf að fá upplýsingar. Það sem hefur gerst, virðulegi forseti, er það að ríkisstjórnarmeirihlutinn hefur ákveðið að virða að vettugi hefðbundið verklag, verklag sem miðar að því að vanda sig. Ég er búinn að vera nokkuð lengi hér á Alþingi Íslendinga. Ég man ekki eftir því að menn hafi rifið út mál með þessum hætti, því að eftir að búið er að rífa málið út þá koma svör, seint og um síðir, en svörin koma eftir að málið er tekið út. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Við höfum kvartað undan mörgu hér þegar kemur að vinnulagi ríkisstjórnarmeirihlutans en ég held að aldrei hafi menn gengið jafn langt í því að vanvirða hefðbundin störf þingsins (Forseti hringir.) og vanvirða þar með þjóðina.