157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:09]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég tek undir athugasemdir þeirra hv. þingmanna sem töluðu hér á undan og bið yður að taka þær alvarlega því að þetta er alvarlegt mál. Þetta er augljóslega gríðarlega stórt mál sem varðar alla framtíð og fullveldi Íslands en fyrir vikið ætti það að vera mál sem þingið afgreiddi með skynsemi og þeirri vinnu sem nauðsynleg er, jafnvel fyrir smæstu mál. Þess í stað hefur framganga meiri hlutans í umfjöllun um þetta mál verið með stökustu ólíkindum og birtist síðast í því að málið var rifið út úr utanríkismálanefnd á meðan beðið var eftir gögnum málsins og ekki nóg með það heldur liggja gögn, grundvallargögn í þessu máli, læst inni í leyniherbergi hér í húsnæði Alþingis sem hv. þingmönnum, þar með talið hv. þingmönnum minni hlutans í utanríkismálanefnd, er meinað að skoða nema þeir lofi því að segja ekki frá því (Forseti hringir.) sem þar kemur fram. Svo hættuleg eru þessi gögn.

Frú forseti. Ég hvet yður til að grípa hér inn í því að ef slík vinnubrögð viðgangast í svo stóru máli þá verður það væntanlega bara almennt reglan hér á Alþingi.