vinnubrögð í meðferð mála.
Virðulegi forseti. Mig langar að koma hingað upp og taka undir með kollegum mínum, hv. þingmönnum, og lýsa yfir verulegum vonbrigðum með vinnubrögðin hjá meiri hluta utanríkismálanefndar. Það eru ótrúleg vonbrigði að verða vitni að því að vinnufundir nefndarinnar séu felldir niður trekk í trekk, nú síðast á þriðjudag, vinnufundir sem eru skammtaðir nefndinni til þess að hægt sé að kafa dýpra ofan í mál. Ég gat ekki betur séð en aðrar fastanefndir væru hér að störfum. Við erum að fást við stærsta mál sem ég hef komið að á mínum þingferli, þó að hann hafi ekki verið langur, og mér er fyrirmunað að skilja hvernig hamagangurinn og asinn getur verið slíkur að það séu meira að segja felldir niður fyrirframskammtaðir vinnufundir nefndarinnar sem vel væri hægt að nýta til frekari úrvinnslu þessa risastóra máls. Mér þykir þetta ekki bera brag af virðingu fyrir því trausti sem okkur þingmönnum er sýnt hér til starfa á Alþingi.