157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:11]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Í þessu máli hafa verið kallaðir til tugir gesta og kallað eftir sérfræðiálitum frá Hagfræðistofnun og Lagastofnun, Feneyjanefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Það hafa verið haldnir þrír opnir fundir, fleiri held ég en í nokkru öðru þingmáli, alla vega í utanríkismálanefnd, þannig að allur undirbúningur þessa máls er að mínu mati nokkuð góður. En af því að hér kemur fólk upp í fundarstjórn forseta þá langar mig kannski bara að spyrja, ef fólk væri svo vænt að fara hér í hliðarsal og ná í þingsköp Alþingis, hvort það gæti bent okkur á hvar í þingsköpunum forseti Alþingis hefur farið út af sporinu. Ég get ekki séð að það hafi verið neitt athugavert við það hvernig þetta mál hefur verið afgreitt. Það er rétt að það var tekið út í ágreiningi en satt að segja hafði ég svona fyrir fram búist við því að það gæti orðið raunin enda er málið mjög umdeilt. En ég hlakka mjög til umræðunnar sem hér mun fara fram á eftir.