157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:13]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir með félögum mínum í stjórnarandstöðunni og sér í lagi okkur sem sitjum í utanríkismálanefnd og upplifðum því miður, frú forseti, sem er eitthvað sem forseti verður að heyra af varðandi störf hér á Alþingi, að það væri meiri áhersla lögð á að afgreiða málið út sama hvað tautaði og raulaði frekar en að gefa því skynsamlegt svigrúm til að glöggva sig á þeim gögnum sem voru að berast kosningahelgina síðustu þegar sveitarstjórnarkosningarnar voru. Allir vita að að venju eru þingstörfin í skjóli frá þessari helgi. Það er ótrúlega skrýtið að ætlast til þess að á mánudagsmorgni, sjö mínútum eftir að fundur var settur, ættu fulltrúarnir að vera búnir að glöggva sig á þeim gögnum. Ég tala nú ekki um þau gögn sem voru að berast á mánudeginum, fjórum og fimm klukkustundum eftir að málið var tekið út úr nefnd. (Forseti hringir.) Það er lítið gagn af þeim gögnum sem berast þegar búið er að taka mál út úr nefnd. (Forseti hringir.) En í staðinn fyrir að gefa okkur sólarhring til þess að glöggva okkur á þessu og ræða þetta betur á fundartíma, sem var frátekinn á nefndardegi fyrir utanríkismálanefnd, var sá fundur felldur niður. (Forseti hringir.) Það er ekki nógu góður bragur á þessum vinnubrögðum í svo stóru máli.