157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:14]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hv. formaður utanríkismálanefndar, Pawel Bartoszek, kemur hér upp og þylur upp gesti sem hafa komið fyrir nefndina en mig langar að benda þeim á það sem á fundinn hlýða að síðast í dag kl. 13:53 bárust okkur nýjar upplýsingar vegna inniliggjandi upplýsingabeiðni til utanríkismálanefndar. Umræðan hófst í dag. Það var alltaf planið, eitt af mörgum frægum plönum þessarar ríkisstjórnar. Mér finnst að í stað þess að hv. formaður utanríkismálanefndar sé að þylja hér upp það sem hefur farið fram á fundum nefndarinnar svari hann því: Hver er ástæðan fyrir því að formaður utanríkismálanefndar og meiri hluti þessarar nefndar fellir niður ítrekað vinnufundi nefndarinnar á síðastliðnum vikum? Af hverju vill þessi meiri hluti að það komi fram minni upplýsingar en ekki meiri? Mér finnst þessi meiri hluti skulda þjóðinni þær upplýsingar.