157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:16]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Frú forseti. Í þessu máli felst vinna nefndarinnar í því að safna upplýsingum. Í þessu máli tökum við ekki lokaákvörðun um hvað gerist næst. Það er þjóðin. Við þurfum því að safna öllum upplýsingum sem mögulegar eru og bera þær á borð fyrir þjóðina. Ríkisstjórnin fór ekki með málið í hefðbundið samráð, keyrði það hér í gegn. Ríkisstjórnin setti nefndinni svo takmarkaðan tíma að formaður nefndarinnar hefur hafnað ítrekað alls kyns beiðnum. Meiri hluti nefndarinnar ákvað, eða framkvæmdarvaldið, að setja hér leynigögn sem við máttum sjá, ekki vitna í, ekki tala um, ekki birta. Til hvers ættum við að sjá þau? Er það ekki þjóðin sem á að sjá þau? Það er þjóðin sem tekur ákvörðunina. En til að svara hv. formanni utanríkismálanefndar þá er það forseti Alþingis sem stjórnar því hvaða mál eru sett á dagskrá. Minni hlutinn mótmælti því (Forseti hringir.) að það væri búið að skoða málið til hlítar. Þess vegna er mikilvægt að ræða það hér við forseta Alþingis sem ber ábyrgð á því að þetta mál er til umræðu í dag.