157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:22]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það er alveg rétt sem hv. þm. Sigmar Guðmundsson sagði hér áðan, að það er ekkert óeðlilegt og óvanalegt að þingmenn hafi aðgang að trúnaðargögnum áður en þeir taka ákvarðanir í þeim málum sem við fjöllum um hér. Það er hins vegar í þessu máli þannig að það er þjóðin sem á að taka ákvörðun. Það er því þjóðin sem þarf að hafa upplýsingarnar og það er þjóðin sem fær ekki upplýsingar. Þess vegna er þetta óeðlilegt, virðulegur forseti, og það er mjög sérstakt og hljóta að vera sérstök vinnubrögð að kalla til tugi sérfræðinga til þess að eiga að meta og leggja mat á og koma með álit á þessu máli og síðan þegar allir þessir aðilar hafa komið og gert grein fyrir sínu áliti þá er aflétt trúnaðinum. Þá koma upplýsingarnar fram eftir að álitsgjafarnir hafa komið fram fyrir nefndinni. Væri ekki eðlilegt að þessir aðilar hefðu haft aðgang að þessum gögnum til að geta glöggvað sig betur á málinu og komið með betri sýn og tjáð sig mögulega með öðrum hætti en þeir gerðu fyrir nefndinni?