157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:25]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Nú rétt á eftir mun hefjast síðari umræða um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar varðandi aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Stjórnarandstaðan óttast ekki þá umræðu, hún gerir það alls ekki, en við gerum þá kröfu þegar við göngum til þessarar umræðu að við sitjum öll til jafns við þetta borð upplýsinga sem á að vera. Mér finnst ég koma hér trekk í trekk í fundarstjórn og benda ríkisstjórninni á slæleg vinnubrögð, hvernig málum er þröngvað hér í gegnum nefndir, hvernig minni hlutanum hefur verið neitað um gestakomur, að spyrja spurninga o.s.frv. — að varpa betra ljósi á málin.

Það er mér óskiljanlegt að forsætisráðherra hafi sagt hér í umræðu fyrr í vetur að þjóðin þurfi ekki að vita nokkurn skapaðan hlut um (Forseti hringir.) þetta mál áður en gengið verður til kosninga því að þjóðin eigi að treysta ríkisstjórninni, ríkisstjórninni sem heldur gögnum leyndum, er með leyndarhyggju — (GAS: Þú ert ekki að fara með rétt mál.) — Ég er að fara með rétt mál. (GAS: Nei, þú ert ekki að fara með rétt mál. Ekki leggja fólki orð í munn.(GÞÞ: Getur þú ekki farið í ræðustól eins og annað fólk? ) )(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni frið. )Forsætisráðherra sagði hér í þessum sal að þjóðin þurfi ekki að vera sérfræðingur í þessu máli áður en gengið er til kosninga. Þetta hefur forsætisráðherra sagt tvisvar sinnum. Þingmönnum hér ber að sinna sínum störfum og (Forseti hringir.) kynna sér mál til hlítar og þessi leyndarhyggja ríkisstjórnarinnar er grunsamleg.

(Forseti (ÞSv): Ég minni hv. þingmenn á að gefa þeim sem hefur orðið hljóð.)