vinnubrögð í meðferð mála.
Frú forseti. Ég vil taka undir þakkir sem hér hafa verið færðar til formanns utanríkismálanefndar, hv. þm. Pawels Bartoszeks, sem mér þykir hafa sinnt skipulagi og samstarfi, eins miklu og má vera, í utanríkismálanefnd með miklum sóma. Mér finnst ástæða til að ítreka það hér í þessum stól. Hér hafa verið lögð vinnuplön fram mjög snemma í ferlinu við misháværar undirtektir, ef þá yfirleitt nokkrar frá minni hlutanum sem reynir að geyma undir það allra síðasta að gera einhverjar athugasemdir. Hér hefur hv. þingmaður og formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, sagt að þingmenn eigi að kynna sér gögn sem lögð eru fyrir nefndina. Fulltrúar minni hlutans, þá væntanlega fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd, verða þá að svara fyrir það hvers vegna þau höfnuðu því að kynna sér þau gögn í þar til gerðu herbergi í samræmi við venju sem tíðkast hér í þingstörfum og lögum samkvæmt. Hvers vegna höfnuðu þau því að kynna sér þau gögn sem voru lögð fram fyrir nefndina frá utanríkisráðuneytinu? (Forseti hringir.) Ég hef ekki gott svar við því en ég kynnti mér þessi gögn og ég ætla ekki, í samræmi við skyldur mínar og lögum samkvæmt, (Forseti hringir.) að fara að tala um það hér. Það eigum við að gera í utanríkismálanefnd.