157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:30]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Mig langar, líkt og aðrir þingmenn stjórnarandstöðunnar, að koma hér og tala um vinnubrögðin eða fúsk við þau vinnubrögð sem hafa verið höfð að leiðarljósi í þessu mikilvæga máli, einu stærsta máli þessa kjörtímabils, og vekja athygli á því að forsætisráðherra virðist ekki alveg vera að stýra ferðinni hjá þessari ríkisstjórn, því að sjálf hafði hæstv. forsætisráðherra talað fyrir því að hér væru önnur mikilvægari mál sem þyrfti að ráðast í áður en við færum í þjóðaratkvæðagreiðslu um hugsanlegar aðildarviðræður, m.a. að ná tökum á verðbólgu og vöxtum. Höfum það í huga að síðast í morgun voru stýrivextir hækkaðir af Seðlabanka Íslands.

Hæstv. ríkisstjórn virðist augljóslega vera algjörlega búin að missa tökin á efnahagsmálunum og er að setja umræðuna hér í átt að Evrópusambandinu til að reyna að slá ryki í augu fólks sem áttar sig á því að það er allt að hækka í samfélaginu, allt saman. Ég held að við eigum að fara að huga að því hvar hagsmunum þjóðarinnar er best borgið og fara að einbeita okkur að því sem er mikilvægt hér, m.a. að ná tökum á verðbólgu og vöxtum (Forseti hringir.) í stað þess að þræta hér um hugsanlega þjóðaratkvæðagreiðslu. Þingflokkur Framsóknar er ekki mótfallinn því að hér skuli treysta þjóðinni en þegar það er verið að vitna í að (Forseti hringir.) enginn skuli kynna sér gögn í lokuðu herbergi, þá skulum við hafa það í huga að þetta eru gögn sem ekki má birta, sem þingmenn mega ekki tala um (Forseti hringir.) og ekki vitna til en það er samt þjóðin sem á að hafa þessar upplýsingar því hún þarf að taka ákvörðun að lokum.