157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:32]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Mér er meinilla við að koma hingað upp og bera hönd fyrir höfuð mér af því að við erum að fjalla um fundarstjórn forseta en ekki eitthvað annað. En ég vil samt nefna það að strax í upphafi ferilsins 18. mars var lögð fram ítarleg vinnuáætlun um það hvernig ætti að vinna úr þessu máli. Síðan var lögð fram önnur áætlun 13. apríl þegar allar umsagnir lágu fyrir og gefinn frestur til að kalla eftir viðbótargestakomum. Það er vissulega rétt að formaður nefndarinnar felldi niður fund nefndarinnar 24. apríl. Af hverju var það? Af því að það bárust engar óskir um viðbótargestakomur frá utanríkismálanefnd fyrir þann frest sem var gefinn. Það var gefinn frestur til 14. apríl til þess að óska eftir viðbótargestakomum og minni hlutinn óskaði ekki eftir neinum einasta gesti til viðbótar. Vissulega var síðan þannig að þegar allur þessi frestur var liðinn og kom að því að ljúka gestakomum þá fóru að koma viðbótaróskir um gesti. Ég þekki svolítið þennan leik. Þetta snýst um að bíða eins lengi og hægt er með allar óskir (Forseti hringir.) um viðbótargesti og upplýsingar til að setja málið í tímaþröng. Mér finnst að fólk sé komið með boltann út í horn.