vinnubrögð í meðferð mála.
Frú forseti. Allt ber þetta að sama brunni. Það á að hraða þessu máli í gegn eins og nokkur kostur er með sem allra minnstri umræðu. Það fékk ekki að fara í samráðsgátt stjórnvalda. Það var kynnt á blaðamannafundi áður en búið var að kynna það fyrir utanríkismálanefnd, áður en búið var að kynna það fyrir þingmönnum, þar með talið þingmönnum stjórnarmeirihlutans, og mælt fyrir því strax á næsta þingfundi áður en málið hafði verið rætt í utanríkismálanefnd. Vinnan í utanríkismálanefnd með dagskrám og plönum hv. þm. Pawels Bartoszeks hefur öll gengið út á að hraða málinu sem mest í gegn. Menn hafa fengið að koma í fáeinar mínútur með grundvallarvitnisburð í málinu og svo reknir út. Eftir standa leynigögn.
Frú forseti. Nú biðla ég til yðar að frelsa leynigögnin, ef ekki fyrir Alþingi þá fyrir þjóðina sem á að taka ákvörðun í málinu og verður að byggja hana á raunverulegum upplýsingum um stöðu málsins. Það varðar ýmis samskipti við erlent ríkjabandalag (Forseti hringir.) en þetta mál varðar samskipti við erlent ríkjabandalag.