157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

vinnubrögð í meðferð mála.

[15:35]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég heyrði á máli einhverra hv. þingmanna að einhvers misskilnings gæti um þessi trúnaðargögn í einhverjum leyniherbergjum og látið að því liggja að þingmenn hér vilji kynna sér einhver gögn eða hafi jafnvel gert það og upplýst um þann trúnað. Vandinn við það gagnvart þingmönnum að leggja fram gögn í trúnaði er einmitt sá að þingmenn virða alltaf slíkan trúnað. Það er ekki boðlegt, frá sjónarhóli þingmanna, að leggja fyrir þingmenn gögn sem bundin eru trúnaði. Það er þess vegna ekki boðlegt að það liggi gögn í einhverju leyniherbergi núna, sem nota bene, vel að merkja, stendur einungis til boða þingmönnum í hv. utanríkismálanefnd til að kynna sér. Það eru aðrir þingmenn hér. Þeir eru 63. Þeir hafa sama rétt og eiga að hafa sama rétt og sömu aðstæður til þess að kynna sér gögn í máli. Og þeir eiga ekki bara að geta kynnt sér gögn í máli, þeir eiga að kynna sér gögnin til þess að koma upplýsingum á framfæri, (Forseti hringir.) geta mótað sér skoðanir í tilteknu máli, byggðar á gögnunum. Að fara fram á annað er fullkominn misskilningur um eðli þingstarfa.