vinnubrögð í meðferð mála.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Víðir Reynisson kemur hér og ber það upp á mig að ég tali gegn betri vitund. Það er fráleitt að halda slíku fram. Ég segi við hv. þingmann, aðra þingmenn, forseta þingsins og þjóðina: Ég hef aldrei séð svona vinnubrögð. Því er haldið fram af forystumönnum ríkisstjórnarinnar að viðræðum sem allir héldu að væri hætt, vegna þess að Evrópusambandið sagði það í yfir áratug, hefðu siglt í strand vegna þess að væntingar sem voru gerðar af hálfu Íslendinga stóðust ekki. Forystumenn ríkisstjórnarinnar segja: Við erum búin að tala við marga og þeir segja að við fáum svo margt út úr þessu. Eftir að stjórnarandstæðingar eru búnir að fá gögn um samskipti ríkisstjórnarinnar við Brussel kemur í ljós að þau hafa verið miklu meiri og frá fyrsta degi hafi verið talað um það að við værum að fara inn í Evrópusambandið. (Forseti hringir.) Það sem hv. stjórnarandstæðingar eru að biðja um — því að þjóðin á rétt á því að fá að vita hverju sé búið að lofa og hvaða samningar liggi fyrir. (Forseti hringir.) Það að koma hér upp og segja að ég tali gegn betri vitund (Forseti hringir.) — ég er að benda á það að öll vinnubrögð í þessu máli eiga sér ekki fordæmi, (Forseti hringir.) meira að segja þannig að Jóhönnustjórnin kemur vel út í þessum samanburði. (Forseti hringir.) Það er slæmur dómur.