157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:39]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Í morgun hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti enn á ný og eru þeir komnir í 7,75%. Verðbólgan mælist 5,2%, verðbólguvæntingar hafa hækkað, hagvaxtarhorfur hafa versnað og horfur eru nú á meira atvinnuleysi en áður hefur verið spáð. Fyrir akkúrat einu ári síðan lækkaði Seðlabanki Íslands vexti úr 7,75% í 7,5% og nú erum við aftur komin á sama stað. Heilt ár hefur tapast, heilt ár án árangurs, heilt ár þar sem heimilin hafa greitt reikninginn fyrir stefnuleysi ríkisstjórnarinnar. Þetta er staðan sem blasir við ungu fólki sem vill eignast eigið húsnæði. Þetta er staðan hjá fyrirtækjum sem vilja ráða fólk, fjárfesta og skapa verðmæti en mæta síversnandi samkeppnisumhverfi í boði ríkisstjórnar Íslands.

Hæstv. forsætisráðherra hefur talað um aga, ábyrgð og plan. Hún hefur talað um að gefast ekki upp þótt á móti blási. En þetta er staðan, virðulegi forseti. Þetta er ekki plan sem er að virka. Þetta er ríkisstjórn sem er löngu orðin hluti af vandanum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur bent á aðra leið: Lækkun skatta og gjalda, raunverulegan sparnað í ríkisútgjöldum, minni opinber umsvif, betri skilyrði fyrir atvinnulífið og heimilin í landinu sem ríkisstjórnin virðist halda að geti alltaf borgað aðeins meira. Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Sér hún ekki að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar hefur brugðist stórkostlega? Hvað þarf eiginlega að gerast til þess að ríkisstjórnin hverfi frá braut skattahækkana, aukinna ríkisumsvifa og innantómra fyrirheita?