hækkun stýrivaxta.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ég skil þetta vel. Hv. þingmaður vill kenna núverandi ríkisstjórn um að það skuli vera 5,2% verðbólga á Íslandi, stýrivextir skuli vera 7,75% eftir hækkun í dag eins og þessi staða sé algjörlega ný staða í íslensku efnahagslífi. Ég held að fólk sjái í gegnum svona málflutning og átti sig á því að þetta er ekki sanngjörn framsetning. Þingmaðurinn lætur t.d. það ótalið að vextir eru enn þá töluvert lægri en þegar síðasta ríkisstjórn sprakk og verðbólga er búin að vera lægri á þessu kjörtímabili en því síðasta og nefnir ekki það sem allir vita; að við höfum fengið umtalsverðar olíuverðshækkanir í fangið á undanförnum mánuðum. Þetta eru ytri áhrifin sem blasa við á meðan innri þættir eins og t.d. húsnæðisliðurinn hefur að raunvirði lækkað.
Ég er auðvitað ekkert sátt við þessa stöðu eins og gefur að skilja eftir að við náðum verðbólgunni niður í 3,7% í desember sem var sú lægsta í fimm ár. En ég tek fulla ábyrgð á viðbrögðum okkar og viðbrögð okkar hafa m.a. verið, eins og málið sem var að klárast hér í þinginu fyrir ekki svo löngu, lækkun á dælunni. Við erum líka búin að leggja fram fjármálaáætlun með hallalausum fjárlögum en hv. þingmaður var sjálfur ráðherra í ríkisstjórn sem náði aldrei að skila þessu af sér. Þetta er fyrir árið 2027 og við höldum, já, plani hvað það varðar. Svo erum við núna í startholunum að hefja þríhliða samtal við verkalýðshreyfinguna og vinnumarkaðinn um aðgerðir til að hemja verðbólgu.
Staðreyndin er auðvitað sú að þessi ríkisstjórn hefur starfað í rúmt ár, erfir kerfi sem er gegnsýrt af verðtryggingu og sjálfkrafa hækkunum, kerfi þar sem launaskrið er allt of útbreitt, m.a. vegna kjarasamninga sem voru gerðir hér 2024 af fyrri ríkisstjórn. Þetta er áskorun. Við erum að leita leiða núna einmitt til að snúa af þessari leið, með því að afnema verðtryggingu og taka út sjálfvirkar vísitöluhækkanir. Þetta er vegferð (Forseti hringir.) en það eru næg verkefni og við munum klára þau.