157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:44]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Þetta eru gamalkunnug stef. Hér mætir forsætisráðherra og skellir skuldinni á alla aðra en ríkisstjórnina sjálfa. Þetta er forsætisráðherra ekki sæmandi. Ég ætla að minna forsætisráðherra á að það er ekki ríkisstjórn Íslands sem gerir kjarasamninga. Það er ekki á forræði ríkisstjórnarinnar að bera ábyrgð á því. Hér mætir forsætisráðherra enn eina ferðina og talar um það og skellir skuldinni á aðra þegar ríkisstjórn Íslands í dag er hluti af þessum vanda. Hún talar um og kveinkar sér yfir háu olíuverði en hefur ekki sýnt því nokkurn skilning að fyrri ríkisstjórn þurfti að fást við Covid, fall WOW air og svo jarðelda á Reykjanesi. Við sáum líka nálgun ríkisstjórnarinnar bersýnilega í dag þegar hv. þm. Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, brást við vaxtahækkuninni með því að segja að kjarni málsins væri upptaka evru. Með öðrum orðum: Þegar ríkisstjórnin nær ekki tökum á efnahagsvandanum hér heima þá skulum við bara beina athyglinni annað, ekki taka ábyrgð, ekki draga úr ríkisútgjöldum, ekki hætta við skattahækkanir, heldur að segja fólki að lausnin sé einhvers staðar annars staðar. (Forseti hringir.) Það er ekki efnahagsstefna, frú forseti, þetta er fullkomin uppgjöf ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Hversu lengi eiga heimilin að bíða eftir árangri? Og tekur hæstv. forsætisráðherra virkilega undir að upptaka evru sé svarið við eigin árangursleysi í efnahagsmálum?