157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:45]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að ríkisstjórnin gerir ekki samninga en hið opinbera semur við opinbera starfsmenn. Það liggur alveg fyrir og það á hv. þingmaður að vita og það eru afdrifaríkir samningar sem hafa mikil áhrif á útgjöld ríkisins eins og við sjáum í þeim fjárlögum sem er reglulega verið að afgreiða. Við sáum olíuverðshækkanir á síðasta kjörtímabili. Ég veit ekki til þess að ríkisstjórnin hafi borið ábyrgð á þeim með því að fella niður vask á olíu eða að lækka þau gjöld heldur fékk almenningur það beint í fangið. Vafalaust er það þannig hjá öllum ríkisstjórnum að það koma upp tímar þar sem eru ytri áhrif og maður sýnir því skilning. Þetta er einfaldlega útskýring á aðstæðum. Síðustu tveir til þrír mánuðir hafa verið uppfullir af ytri áhrifum. Við tökum þetta alvarlega. Þess vegna erum við í þessu þríhliða samtali. Ég býst við að það komi jákvæðar niðurstöður út úr því. En eitt er á hreinu, það kemur ekki til greina að taka upp tillögur Sjálfstæðisflokksins eins og þau reyndu að stunda hér á síðasta kjörtímabili sem leiddu til 9,25% vaxta og 10% verðbólgu.