aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Frú forseti. Þetta gengur ekki vel hjá hæstv. ríkisstjórn, það að standa við helstu kosningaloforðin. Það bara gengur alls ekki vel og birtist í hárri verðbólgu og síhækkandi vöxtum. En við hljótum að velta fyrir okkur á þessu stigi, eins og við höfum reyndar gert alllengi: Hvenær kemur sá tímapunktur að brugðist verði við? Því að þótt það sé rétt sem hæstv. forsætisráðherra segir að þetta sé allt mjög erfitt við að eiga, þá væri gott fyrsta skref að hætta að kynda bálið því að ríkisstjórnin hefur sannarlega leitt verðlagshækkanir með hinum ýmsu aðgerðum sínum og hækkunum. Væri ekki gott að láta a.m.k. staðar numið þar? Eða finnst mönnum kannski bara ágætt að þetta leysist ekki alveg á næstunni? Ég spyr af sömu ástæðu og hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir hér áðan. Við höfum séð í dag að hinir ýmsu stuðningsmenn Viðreisnar, m.a. hér á þingi, hafa nánast fagnað vaxtahækkun Seðlabankans því að þeir telja það aðstoða í baráttunni fyrir því að koma Íslandi í Evrópusambandið. (Gripið fram í: Æ.) Það hefur líka sendiherra Viðreisnar í Samfylkingunni, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, gert.
Því hlýt ég að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Ætlar hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin bara að halla sér aftur hvað varðar stóra verkefnið svona fram undir lok ágúst eða verður það sem eftir er af þessu þingi og sumarið nýtt til að bregðast við því ástandi sem blasir við í efnahagsmálum og hefur gert lengi? Treystir kannski hæstv. ráðherra embættismönnum í Brussel betur en sjálfri sér til að rétta af íslenskt efnahagslíf?