aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Frú forseti. Jú, ég sat þarna og hlustaði á svar hæstv. forsætisráðherra. Vandinn var bara sá að hæstv. forsætisráðherra svaraði ekki fyrirspurnum hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur. Við fengum að heyra sömu gömlu rulluna um að verið væri að taka á ástandinu með því að stefna að hallalausum fjárlögum frá hæstv. ráðherra sem er nýbúinn að keyra í gegnum þingið fjárlög með 143 milljarða kr. aukningu. Það er stefnt að því í framtíðinni en ekkert gert til að sýna að mönnum sé alvara. Á meðan er hins vegar allt mögulegt hækkað og tónninn gefinn fyrir hækkanir í atvinnulífinu og alls staðar annars staðar. Það er þá ekki að undra nema maður spyrji: Ruglast hæstv. ríkisstjórn á því að segja eitthvað og óska sér einhvers og því að gera það og afleiðingum þess að gera eitthvað raunverulega? Það virðist vera. Af því að hæstv. ráðherra var svo vinsamlegur að rifja upp ríkisstjórnina 2013–2016 þá var ríkið rekið hallalaust í raunveruleikanum, ekki bara í draumum okkar.