aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
Frú forseti. Ég hef svo sem ekki miklu við þetta að bæta. Það liggur alveg fyrir hvaða aðgerðir eru í pípunum. Já, við erum með áætlanir um að næstu fjárlög verði hallalaus. Þau fyrstu okkar urðu það ekki. Það var stórt gat að brúa og það tekur tíma. Við ætlum ekki að snúa öllu við á einum sólarhring. Við erum líka með velferðarkerfi og þjónustu sem þarf að vernda. Ef það hefur verið niðurstaðan í tæplega tíu ár að komast ekki í núllið þá tekur það kannski meira en eitt ár að komast þangað. Við erum að vinna að því markmiði. Við höfum lagt fram haldbær plön hvað það varðar. Við höfum klárað ákveðnar aðgerðir hér í þinginu. Við erum farin af stað í skammtímasamtal við vinnumarkaðinn og samtök atvinnurekenda sem á að skila niðurstöðum núna í sumar. Þetta er allt í ákveðnum farvegi. Nú þurfum við líka að hafa úthald í að klára málin og fara í þessar aðgerðir sem við erum búin að útlista og við þurfum að standa undir því. Verkin þurfa að tala og munu tala.