samningsmarkmið og áherslur í viðræðum við ESB.
Virðulegur forseti. Í dag hefst umræða um mál sem er hæstv. utanríkisráðherra mjög kært, leyfi ég mér að fullyrða, um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Nú veit ég ekki hvort hæstv. utanríkisráðherra ætlar að taka þátt í þeirri umræðu, það væri kannski ágætt að fá svar við því hér, en ég hvet hana eindregið til að gera það við þessa síðari umræðu málsins til að gefa þingmönnum færi á að spyrja hana og heyra hennar afstöðu því að hún þekkir þetta mál auðvitað mætavel og er hennar mál og er henni mjög kært. En í ljósi þess að ég veit ekki hvort hún ætlar að vera viðstödd þessa umræðu þá vil ég nota tækifærið til að spyrja hana út í samningsmarkmið og samningsforsendur sem íslensk stjórnvöld ætla að hafa í þessum fyrirhuguðu viðræðum. Nú liggur fyrir nefndarálit meiri hlutans, sem er bara alveg ágætt svo langt sem það nær. Ég tek undir það sjónarmið sem þar kemur fram varðandi hagsmuni Íslands í auðlindamálum og sjávarútvegsmálum, að það þurfi að tryggja að slíkar lausnir verði hluti af frumrétti Evrópusambandsins en ekki bara hluti af einhvers konar gerðum sem geta tekið breytingum síðar, séu hreinlega hluti af frumrétti Evrópusambandsins.
Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra um þessi sjónarmið sem við erum öll sammála um, leyfi ég mér að fullyrða, hér á þingi og ég held þjóðin öll, að sjávarútvegur sé mikilvægur fyrir íslenskt efnahagslíf og það sé forsenda fyrir viðræðum að forræði á stjórn veiða og skiptingu aflaheimilda innan sérstakrar efnahagslögsögu haldist á Íslandi. Með hvaða hætti ætlar hæstv. utanríkisráðherra að tryggja að um þetta liggi fyrir formleg afstaða íslenskra stjórnvalda fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þannig að kjósendur þurfi ekki að velkjast í vafa um þessa afstöðu og Evrópusambandið þurfi þannig ekki heldur ekki að velkjast í vafa um þá afstöðu að Ísland geri kröfu til þess að þessum málum verði skipað með aðildarsamningi (Forseti hringir.) sem hafi rétthæð og stöðu frumréttar Evrópusambandsins?