157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

samningsmarkmið og áherslur í viðræðum við ESB.

[15:56]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn um leið og ég tek undir með hv. þingmanni: Já, þetta mál er mér kært. Það eru margvíslegar ástæður fyrir því. En fyrst og síðast er þetta að mínu mati eitt stærsta almannahagsmunamál umfram sérhagsmuni sem við getum talað um hér á þessu þingi. Það eru gríðarlegir almannahagsmunir fólgnir í því að sjá hvað samningur felur í sér fyrir einstaklinga, fyrir fjölskyldur, fyrir fyrirtæki, fyrir það hvaða vaxtaumhverfi okkur býðst, fyrir það hvernig við getum farið út úr því fákeppnisumhverfi sem ríkir hér á Íslandi á mjög mörgum sviðum sem beinist ekki síst að því að það umhverfi sem hér er er ekki til hagsbóta fyrir fjölskyldur landsins. Þannig að já, þetta mál er mér kært. Ég er að reyna að búa til valkosti fyrir Ísland til þess að fara út úr því sem er að mínu mati hávaxtaumhverfi. Það er ekki heppilegt fyrir fjölskyldur að koma sér upp húsnæði. Við erum að borga hér húsnæði þrefalt á við aðrar þjóðir. Við skulum bara taka t.d. Færeyjar sem eru utan Evrópusambandsins en eru tengdar beint við evruna. Þar eru þeir með bæði lægri verðbólgu að jafnaði og allt að því þrefalt lægri vexti. Já, þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég vil sjá að litlu og meðalstóru fyrirtækin blómstri hér, að nýsköpun geti raunverulega fundið sér fastan sess í íslensku samfélagi, ekki bara til skemmri tíma heldur til lengri tíma með fyrirsjáanleika í stöðugum gjaldmiðli. Þetta er eitt af því sem ég sé í þessu og líka margt fleira, m.a. að það er margt búið að breytast í heimsumhverfinu, ekki síst með tilliti til varnar- og öryggismála. Við sjáum það að Evrópusambandið er að gera meira, ekki síst á sviði fjölþáttaógna, sem eru ekki síst það svið þar sem reynir á þegar kemur að okkur Íslendingum.

Þannig að já, þetta mál er mér kært. Með hvaða hætti munum við tryggja þetta? Ekki síst með því að skipa öfluga samninganefnd (Forseti hringir.) með fólki. Mér er alveg sama úr hvaða flokki það kemur, bara að við setjum fram okkar ýtrustu kröfur, verjum hagsmuni Íslendinga og sækjum fram, ekki síst á þeim sviðum sem við höfum verið að tala um hér og skipta okkur öll máli, hvort sem er á sviði sjávarútvegs, (Forseti hringir.) landbúnaðar eða orkumála.