157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

samningsmarkmið og áherslur í viðræðum við ESB.

[16:00]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Mér finnst þetta vera ótrúlega merkilegt ár. Við erum að fá núna tækifæri til þess að hleypa þjóðinni að í risamáli fyrir hana sjálfa. Svo fæ ég hér spurningar sem ég fagna af því að mér finnst þær undirstrika að það er komin bjartsýni í stjórnarandstöðuna um að við getum samið það sterkt og vel að við getum m.a. fundið sérlausnir. Ég verð að hrósa meiri hluta hv. utanríkismálanefndar þar sem þetta kemur skýrt fram í nefndarálitinu: Lykilmarkmiðið er að fiskveiðilögsagan verði skilgreind sem sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnarsvæði. Þegar ég heyri þessa angist stundum sem einkennir stjórnarandstöðuna í þessu máli öllu, hræðslu, þá velti ég stundum fyrir mér: Er það kannski það, óttast hún að sjá samning sem dregur fram að öll röksemdafærsla stjórnarandstöðunnar núna í þessum þingsal hefur alla tíð verið á sandi byggð? (Gripið fram í.) (SÁA: Svaraðu spurningunni. Hvaða stöðu á þetta að hafa?) Ég svaraði. Þetta er í nefndarálitinu. (SÁA: Nei.)

(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að hafa sig hæga og gefa gott hljóð í sal.)