löggæsla á Seyðisfirði.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir svarið. Ég vil skerpa á þessu vegna þess að þetta hefur verið til skoðunar í mörg ár og það er ekki búið að hanna og það er enginn undirbúningur sem getur hafist. Sveitarfélagið, hafnir Múlaþings og lögreglan bíða eftir niðurstöðu frá ríkinu. Í fjármálaáætlun 2027–2031 er fjallað um almanna- og réttaröryggi á málefnasviði 09. Þar kemur fram að löggæslu- og landamæraeftirlit eigi að vera öflug og taka mið af breyttum aðstæðum og nýjum áskorunum. Þar er einnig lögð áhersla á að bregðast við alvarlegri og skipulagðri brotastarfsemi. En þegar kemur að Seyðisfirði sem lykillandamæragátt inn í landið, m.a. með Norrænu, og þar sem þessi stóru fíkniefnamál hafa nýlega komið upp, virðist ekki vera nein skýr fjármögnuð lausn né tímasett ákvörðun um lögregluaðstöðuna. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Ef fjármálaáætlun leggur áherslu á öflugt landamæraeftirlit, eflingu löggæslu og viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi, hvers vegna birtist þá ekki skýr lausn fyrir lögregluaðstöðu á Seyðisfirði í forgangsröðun ríkisins? Getur ráðherra skuldbundið sig til þess áður en fjárlagafrumvarp næsta árs verður lagt fram að fyrir liggi ákvörðun um það hvort ríkið ætli að byggja sjálft, gera langtímaleigusamning eða tryggja aðra fjármögnun þannig að hönnun og undirbúningur geti loksins hafist?