157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

löggæsla á Seyðisfirði.

[16:08]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Hvað Seyðisfjörð varðar þá vil ég endurtaka þau orð mín að það er unnið núna að heildstæðri greiningu á húsnæðismálum lögreglunnar á landinu öllu sem er forsenda þess að hægt sé að fara í stefnumótun og áætlanagerð fyrir einstök svæði. Seyðisfjörður og Vestfirðir eru í sérstökum forgangi vegna þess einfaldlega að staðan þar er alvarlegri en alls staðar annars staðar á landinu. Hvað varðar aðrar einstakar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi er væntanlegt frá mér á þingið í haust frumvarp með aðgerðapakka. Það þarf auðvitað að efla lögregluna líka í því samhengi að hún hafi úr nægum verkfærum að moða. Jafnframt er í smíðum löggæsluáætlun sem sterkur starfshópur er starfandi að. Við erum að nálgast verkefni úr öllum áttum en eins og ég nefndi eru Seyðisfjörður og Vestfirðir í sérstökum forgangi.