horfur í efnahagsmálum og hagstjórn.
Frú forseti. Það er óneitanlega býsna sérstakt að hlýða á hæstv. forsætisráðherra hampa sér fyrir að afnema sjálfvirkar vísitölutengingar þegar einmitt ein sú stærsta aðgerð var samþykkt hér nýlega um vísitölutengingar greiðslna úr almannatryggingakerfinu. Þann 9. október 2023 sagði hæstv. forsætisráðherra, þá þingmaður í stjórnarandstöðu:
„Við höfum bent á að þegar ríkisstjórnin gerir minna til að taka á verðbólgunni þá þarf Seðlabankinn að gera meira.“
Ríkisstjórnin hefur valið hærri vexti. Í morgun hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti sína um 25 punkta í annað sinn í tíð þessarar ríkisstjórnar og standa þeir nú í 7,75%. Segja má að bankinn hafi verið nauðbeygður til að hækka vextina nú, enda hafa verðbólguvæntingar til skamms tíma hækkað og langtímavæntingar lítið breyst. Samhliða þessu er spáð minni hagvexti, auknu atvinnuleysi, störfum á einkamarkaði er hætt að fjölga og horfur í ferðaþjónustu hafa versnað. Staðan í efnahagsmálum er því orðin mjög alvarleg og hefur bara versnað frá því að núverandi ríkisstjórn komst til valda og áhrifa hagstjórnar hennar fór að gæta. Ég veit alveg hvað mér finnst sjálfum um frammistöðu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum. Þjóðin finnur fyrir þessu á eigin skinni, á bankareikningum sínum um hver mánaðamót.
En ég vil nota tækifærið og spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hvernig finnst þér hafa gengið? Er hæstv. forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina og afrakstur hennar?