157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

horfur í efnahagsmálum og hagstjórn.

[16:11]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Eins og ég fór yfir áðan þá myndum við auðvitað sannarlega vilja sjá stöðuna aðra en hún er. Það liggur alveg fyrir. Við höfum verið ár í þessari ríkisstjórn og framan af, þar til í desember á síðasta ári, sáum við þessar tölur fara lækkandi. Svo verða hér breytingar, m.a. á sviði alþjóðamála. Já, það er ýmislegt líka sem hefur gengið á hér innan lands og ég ætla ekkert að draga úr ábyrgð eins né neins á því. En þær hafa vissulega þyngt róðurinn, þessar miklu hækkanir sem hafa komið sjálfkrafa inn í kerfið. Ég minntist hér áðan á kjarasamninga sem hafa verið gerðir í gegnum tíðina. Þetta er eitt af því sem við erum að leggjast yfir, það mikla launaskrið sem við sjáum m.a. hjá hinu opinbera þar sem ekki hefur verið gerð ítarleg greining á til að mynda stofnanasamningum og hækkunum sem eru að detta þar inn. Við fengum miklar hækkanir til að mynda vegna læknasamnings sem síðasta ríkisstjórn afgreiddi og er m.a. að gera það að verkum að heilbrigðisstofnanir hringinn í kringum landið og Landspítalinn eru að lenda í verulegum vandræðum hvað varðar sinn fjárhag. Þetta eru allt þættir sem við að hluta til erfum. Við tökum hins vegar ábyrgð á stöðunni og við höfum gert það, eins og ég segi, með þeim aðgerðum sem við erum að boða, með hallalausum fjárlögum. Þau eru vissulega ekki að detta inn fyrr en á næsta ári. Ég viðurkenndi það hérna áðan að það væri of stórt skref að taka eftir níu ár af hallarekstri ríkissjóðs að ætla að snúa því við á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar. Við þurfum að ná yfir stóru myndina. Við höfum verið að kortleggja hvernig við getum gripið inn í. Við erum núna í samtali við verkalýðshreyfinguna og Samtök atvinnulífsins, svo við getum a.m.k. til skemmri tíma náð að hægja á þessari þróun. Við værum að sjálfsögðu ekki að því, hv. þingmaður, nema við vildum gera betur. En þetta er staðan sem við finnum okkur í og við þurfum að hafa úthald til að bregðast við því og munum gera það.