horfur í efnahagsmálum og hagstjórn.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að taka því. Ég spurði hæstv. ráðherra hvernig henni þætti hafa til tekist. Svarið var býsna volgt ef svo mætti að orði komast. Ég er sjálfur þriggja barna faðir og hef þurft að setja mig inn í matskerfi grunnskólanna og það mætti segja að þetta sé svona gulur, þarfnast þjálfunar.
En lausnin sem ríkisstjórnin býður upp á eru aðildarviðræður við ESB, þangað sé hægt að sækja lægri vexti og lægra matvælaverð. Margir vita þó betur, að til að ná stöðugleika, minni verðbólgu og lægri vöxtum þarf að taka til heima. Lausnin verður ekki flutt inn frá meginlandinu. Það er líka skilyrði fyrir upptöku evru að hér náist stöðugleiki fyrst, ekki seinna. Mig langar því að vita í ljósi þess að Seðlabankinn spáir því að verðbólga nái ekki markmiði fyrr en í byrjun árs 2028: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera til að flýta því að markmiðinu verði náð í raun, verðbólga geti minnkað og vextir lækkað? Ég óska þess að hæstv. ráðherra setji svar sitt í samræmi við þessar verðbólguvæntingar. Það er augljóst að aðilar á markaði trúa því ekki að það sem ríkisstjórnin er að bjóða upp á núna dugi til.