horfur í efnahagsmálum og hagstjórn.
Frú forseti. Ég verð að nýta tækifærið til að segja að þrátt fyrir þá ást sem minni hlutinn hefur á upplýsingum þá hefur hann greinilega óbeit á því að almenningur í landinu fái upplýsingar um hvað gæti falist í samningi um aðild. Þetta eru eðlilegar upplýsingar og ég spyr bara: Af hverju er ekki eðlilegt að fólk fái að vita hvað er í boði? Það sem við erum að bjóða upp á er valkostur. Hins vegar virðist minni hlutinn, og hv. þingmaður, miðað við orð hans ef ég túlka þau rétt, vita betur en þjóðin hvað það varðar að það sé ekkert að fá þarna. Hér var sagt að við vitum betur og að það sé ekkert hægt að fá út úr þessu.
Forseti. Ég veit ekki betur og ég veit ekki hvað er í slíkum samningi. Ég veit hins vegar að það á ekki að vera nein leyndarhyggja í tengslum við það hvað gæti falist í slíkum samningi. Ég vil hins vegar segja: Við höfum helmingað hallann og við lækkuðum skuldir um 7,5% á síðasta ári. Við erum, af því að hv. þingmaður spyr, í þríhliða viðræðum núna næstu þrjá mánuði sem við ætlum að klára í ágúst sem varða nákvæmlega þessa stöðu. Það er búið að grípa inn í hvað það varðar. Það er skipulögð vinna í gangi. Ég hlakka til að sjá hvað kemur út úr henni og ætla að leyfa mér að vera vongóð.