157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:38]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni framsöguna. Það er mýmargt um þetta mál að segja en ég ætla að gera að umtalsefni hér samningsmarkmiðin og spyrja hv. þingmann varðandi þau. Í mínum huga er það eitt það mikilvægasta sem stendur frammi fyrir þjóðinni þegar hún gerir upp hug sinn: Hvað fara samningamenn Íslands með sér í farteskinu? Burt séð frá því hvað kemur út úr því, en að hverju er stefnt? Því vekur það undrun mína að í meirihlutaálitinu núna sé ekki fylgt fordæmi frá fyrri vinstri stjórn, sem var að fara í þessa vegferð, þar sem þau gerðu meiri samningskröfur í garð ríkisstjórnar sinnar og gerðu að tillögu sinni að í því áliti, sem var reyndar unnið í sátt minni hluta og meiri hluta, sem varð því miður ekki raunin núna, að þeim markmiðum yrði fylgt. Fyrir þessum 15 árum síðan eða rúmlega það voru bæði meiri kröfur gerðar til samningamannanna fyrir hönd Íslands (Forseti hringir.) og gerð sú krafa að þeirri leiðbeiningu yrði fylgt. Hvorugt á við í meirihlutaáliti núna. (Forseti hringir.) Ég spyr: Hvers vegna?