157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:41]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Það blasir auðvitað við að svo almennt orðalag, þótt ágætt sé, er engan veginn eins nákvæmt og það sem ég skal glöð fara hér yfir úr meirihlutaálitinu frá vinstri stjórninni hinni fyrri, þar sem segir til að mynda að afar mikilvægt sé „[…] að Íslendingar fari með samningsforræði við stjórn veiða úr deilistofnum eins og hægt er“. Í áliti meiri hlutans nú er þá kröfu hvergi að finna. Einnig í landbúnaðarmálum slær meiri hlutinn þá mjög ákveðið til orða:

„Mikilvægt er að Ísland nýti sér og skoði eftir atvikum hvort nauðsyn beri til að útvíkka gildandi reglur ESB til að ná fram heimildum fyrir Ísland til að tryggja sem best stöðu íslenskra bænda.“

Sambærilega kröfu er ekki að finna í álitinu nú. Ég velti fyrir mér af hverju það er verið að nesta samningamenn okkar með óskýrari fyrirmælum en þá. Auðvitað skiptir mestu máli fyrir þjóðina að hún sé sem mest upplýst um það sem liggur fyrir, burt séð frá samningaviðræðunum sjálfum. Minni hlutinn mun koma með tillögu um að þessar samningskröfur liggi skýrt fyrir og verði kynntar íslenskri þjóð 30 dögum fyrir atkvæðagreiðsluna. (Forseti hringir.) Má minni hlutinn eiga von á að fá gott veður úr meiri hlutanum fyrir þessari sjálfsögðu tillögu svo að þjóðin sé sem best upplýst fyrir þessa atkvæðagreiðslu?