þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil lesa upp úr álitinu m.a. þegar kemur að því, með leyfi forseta, en þar segir:
„Meiri hlutinn ítrekar að afar mikilvægt er að tryggja hagsmuni Íslands þegar kemur að nýtingu deilistofna. Leitað verði leiða til að tryggja beina aðkomu að samningaferli um deilistofna.“
Þeim markmiðum sem þarna var lýst er áfram haldið til streitu. Hér kemur hv. þingmaður og rökstyður ákveðna breytingartillögu sem hefur verið lögð fram við tillöguna. Ég hef ekki séð hana, hún hefur ekki komið fram í vinnslu nefndarinnar. Ég sá hana sannarlega í minnihlutaáliti sem birt var á þessum fundi. Ég á dálítið erfitt með að taka afstöðu til breytingartillögu að þingsályktunartillögu þegar við höfum verið að vinna málið í nefndinni svo vikum skiptir og hún hefur ekki komið fram en kemur fyrst fram núna við síðari umræðu um málið.