þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað fjallað um þetta í álitinu þar sem talað er um að meiri hlutinn telji það raunhæfa leið til að tryggja forræði Íslands að lögsagan verði sérstaklega skilgreind sem sérstakt fiskveiðistjórnarsvæði. Ég myndi segja að einhvers konar ákvæði í Rómarsáttmálanum um að Ísland sé undanþegið sjávarútveginum almennt sé ekki endilega það sem stefnt er að heldur að einhverju slíku. Síðan verði þessi staða tryggð í aðildarsamningi, okkar forræði og yfirráð, og jafnframt er vísað hér til reglna um hlutfallslegan stöðugleika. En af því að hér var sagt að það væri einhvers konar minni metnaður en síðast þá er hér sérstaklega vísað í það að þessar sérlausnir eiga sér stoð í frumrétti sambandsins, sem er þá aðildarsamningur, þannig að ég tel að með þessum hætti yrðu þessir hagsmunir okkar tryggðir.