157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:47]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skýr svör. Loksins kom það, ég er búinn að spyrja hv. þingmann og alla hv. þingmenn stjórnarliðsins í allri umræðunni um það hvort við verðum partur af sameiginlegu stefnunni. Það hefur enginn svarað þessu skýrt fyrr en núna, að við verðum partur af sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vera skýr hvað þetta varðar. Það er komin reynsla á sameiginlegu stefnuna. Það hafa náðst fram ákveðnir hlutir sem eru ekki stórir í neinu samhengi. Malta t.d. Það er hægt að breyta þeim reglum einhliða af hálfu sambandsins og það er ekki mikið um annað, einhverjar sérlausnir. Til dæmis eru Bretar búnir að fá þau skilaboð að ef þeir ætla að koma aftur inn þá fái þeir engar sérlausnir.

Getur hv. þingmaður aðeins útskýrt hvernig framkvæmdin á þessum sérlausnum yrði, sem hv. þingmaður sér fyrir sér eða þingmeirihlutinn, í (Forseti hringir.) sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins ef svo óheppilega vildi til að við yrðum aðilar að sambandinu?