þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Nú er það svo að meiri hlutinn var gerður afturreka með spurninguna um að halda áfram en þegar sú umfjöllun var í gangi þá var því haldið fram að umsóknin væri gild og þingsályktunin sem samþykkt var af Alþingi væri þar með gild. Þar, eins og komið hefur fram hér fyrr í andsvörum, voru samningsmarkmið eða jafnvel rauð strik mjög áberandi. Nú þegar meiri hlutinn hefur verið gerður afturreka með þessi rök og þessa spurningu, og spurningin er hvort sækja eigi um að nýju, þá spyr ég formann utanríkismálanefndar: Er það mat hans að gamla þingsályktunin gildi enn hvað varðar þessi atriði? Ef svarið er já þá er það áhugavert. Ef svarið er nei þá spyr ég eins og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir: Hefði ekki verið rétt að leggja í meiri vinnu af hálfu meiri hlutans við að setja fram skýrari samningsmarkmið, rauð strik, til að framkvæmdarvaldið hafi við eitthvað skýrt að styðjast þegar bankað verður upp á dyr Brussel?