157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og hafna því að meiri hlutinn hafi verið gerður afturreka. Við töldum hins vegar tilefni til að taka mark á þessum ábendingum til þess að við gætum kannski aðeins minna deilt um spurninguna sjálfa af því að nóg verður að deila um svarið. Það gætu t.d. verið til þeir kjósendur sem telja að umsóknin hafi sannarlega verið dregin til baka með réttmætum hætti árið 2005 en vilja engu að síður ganga til viðræðna eða hefja þær að nýju. Með því að orða spurninguna svona þá tökum við út þessar deilur um það og einbeitum okkur að því sem máli skiptir. Ég vil meina að ef við berum saman það meirihlutaálit sem liggur fyrir núna og meirihlutaálitið sem fylgdi með þingsályktuninni árið 2009 sé síst minna um skýr samningsmarkmið í þessu áliti heldur en því fyrra. Hvort sem við teljum það í blaðsíðum eða sterkt framsettum fullyrðingum, þá er hér síst um minni vinnu að ræða heldur en fór fram síðast þegar Ísland sótti um aðild að sambandinu. Og já, ég vil meina að þingsályktunin síðan þá sé í fullu gildi enda hefur aldrei komið fram önnur þingsályktun um að hún yrði dregin til baka.